P5: Skopp
Búið til leik, þar sem bolta (hvernig sem hann svo er í laginu) er haldið á lofti.
Hér má sjá grunnhugmynd að lausn:
Ef þú ert alveg stopp með þetta, þá máttu skoða þessa lausn hérna P5-Lausn og vinna síðan áfram þaðan.
Ein villa sem ætti að laga, er a boltinn getur þarna fest í spaðanum, eða ef hraðinn er breytilegur, í veggjunum. Þetta má laga með því að bæta við skilyrði um hvenær stenfunni er breytt. T.d. ef boltinn stefnir inn að skjánum en er enþá utan hans, þá ætti stefnan ekki að breytast.
En útlitið má þó vera allt annað. Mátt þess vegna snúa leiknum á hlið.
Þín lausn skal innihalda:
- Bolta sem skoppar um skjáinn.
- Spaða sem er hreyfður með músarbendlinum og boltinn skoppar af.
- Stig, sem breytast og eru prentuð á skjáinn.
Stærsta atriðið sem þarf að útfæra vel er hvernig spaðinn virkar. Hvenær nákvæmlega telst boltinn snerta spaðann og hvernig látum við boltann bregðast við.
Fleira sem þú skalt hugsa út í:
- Hvernig á boltinn að skoppa?
- Fyrir hvað fær spilarinn stig?
- Fer boltinn einhverntíman út af skjánum? Hvenær? Hvað ætti þá að gerast?
Þetta var grunnurinn. Þetta er líka grunnurinn í Atari leikjunum vinsælu Pong og Breakout
Nýlegar útgáfur af þessum leikjum er hægt að skoða á síðunni þeirra: BreakoutPong
En þið eigið að fara lengra. Hér er eitthvað sem mér dettur í hug:
- Útlitinu mætti breyta. Sumir vilja kannski skoða loadImage() og image() föllin til þess að hafa mynd fyrir bakgrunn og fyrir boltann til dæmis.
- Spaðinn gæti breytt um lögun í spiluninni.
- Aðrir hlutir gætu birst sem á að ná með boltanum, eða spaðanum.
- Spilarinn getur breytt hraða og/eða stefnu boltans með spaðanum einhvernveginn, og stjórnað þannig ferð hans betur. Veltu því t.d. hvernig er dæmigert að þetta gerist í leikjum eins og Pong og Breakout?
- Hægt að fara í tveggja manna (eins og í Pong). Þá ætti hinum spaðanum að vera stjórnað með lyklaborðinu.