P4: Skjáskipting
Skiptu skjánum upp í amk. 4 svæði. Mismunandi hlutir ættu að gerast eftir því yfir hvaða svæði músin er. Til dæmis gæti sá hluti svæðisins sem músin er yfir verið öðruvísi á litinn en hin svæðin.
Hér sérðu einföldustu mögulegu lausn.
Þín lausn skal gera fleira. Þú fylgir eigin hugmyndum, en getur skoðað þetta:
- Skipta skjánum öðruvísi og í fleiri parta.
- Texti sem breytist.
- Fleiri form sem eru teiknuð.
- Litir sem breytast.
- Önnur skilyrði sem breyta teikningunni.